

BYRJUM MEÐ ÁSKRIFT Á
NÆSTU DÖGUM!!
EINA ÁSKRIFTIN SEM ÞÚ ÞARFT ER SÓLBAÐSTOFAN SMART

Opnunartímar á Grensás
Mánudaga til Föstudaga: 08:00 – 23:00
Laugardaga: 09:00 – 22:00
Sunnudaga: 10:00 – 22:00

Opnunartímar á Grensás
Mánudaga til Föstudaga: 08:00 – 23:00
Laugardaga: 09:00 – 22:00
Sunnudaga: 10:00 – 22:00
Smart Jewel

EINFALT AÐ STJÓRNA BEKKNUM Í STAFRÆNUM SKJÁ

EXTRA STÓRIR BEKKIR

NÝJASTA TÆKNI Í LED UVA-UVB PERUM Í ÖLLUM BEKKJUM

LED UVA-UVB ANDLITSLJÓS
Nemendur fá afslátt af stökum tímum gegn framvísun skólaskírteinis.
Hér höfum við tekið saman vinsælar spurningar frá ykkur.
Á ég að nota SPF sólarvörn í ljósabekk?
Nei, mælum ekki með notkun SPF sólarvarnar í bekkjum okkar þar sem þau loka á frekari árangur. Við bjóðum uppá mikið úrval af hágæða ljósakremum sem auka árangur og húðhirðu og mælum með notkun þeirra í hverjum ljósatíma.
Fáðu ráðleggingu frá starfsfólki okkar um hvaða krem hentar þér best.
Ætti ég að nota gleraugu í ljósatíma?
Sólarljós inniheldur útfjólubláa geisla sem geta skaðað sjónhimnu þína.
Þess vegna ættir þú að halda augunum lokuðum og nota gleraugu sem vernda gegn útfjólubláum geislum í bekkjunum.
Smart býður upp á þessi sólgleraugu án endurgjalds með hverjum tíma.
Hvernig virkar brúnka?
Húðin þín verður brún til að mynda sína eigin náttúrulegu sólarvörn, sem kemur í veg fyrir að útfjólublátt ljós nái of djúpt inn í húðina.
Svona virkar það: Þegar útfjólublátt ljós lendir á húðinni bregst húðin fyrst við með því að þykkna í verndarlagi, þekkt sem kallus. UVB þáttur ljóssins örvar framleiðslu melaníns, brúna litarefnisins í litarfrumum húðarinnar.
Þessar melanínríku húðfrumur flytjast síðan upp á yfirborð húðarinnar og gefa húðinni verndandi brúnku.
Þar sem þetta ferli tekur tíma brúnast þú smám saman.
UVA þáttur sólarljóssins litar frekar melanínið sem er þegar til staðar í ytri lögum húðarinnar, sem veldur því að hún dökknar strax.
Þessi samsetning leiðir til fallegrar brúnku og veitir þér samtímis betri náttúrulega sólarvörn.
Hvers vegna verð ég ekki eins brún/n um allan líkamann?
Þetta er vegna þess að sum svæði húðarinnar hafa fleiri litarefnisfrumur en önnur.
Til dæmis litast innri hliðar handleggja og fótleggja hægar, en ytri hliðar fá lit hraðar.
Andlitið litast einnig tiltölulega hægar. Þetta er vegna þess að það hefur náttúrulega þykkara hornlag, sem verndar sérstaklega gegn útfjólubláum geislum. Freknur og aldursblettir hafa hins vegar sérstaklega hátt litarefnisinnihald og dökkna því mjög fljótt.
Má ég fara í ljós ólétt?
Almennt séð er ekki vandamál að nota ljósabekk á meðgöngu, þar sem útfjólubláir geislar komast aðeins í gegnum ysta lag húðarinnar.
Ef þú þolir náttúrulegt sólarljós og hita vel ætti ekki að vera neitt vandamál fyrir þig.
Mælum þó með að taka styttri tíma í senn, drekka vatn fyrir og eftir og ekki verra að hafa handklæði yfir maganum.
Hvert er aldurstakmark í ljós?
Það er 18 ára aldurstakmark að nota ljósabekki á Íslandi.
Um Smart
Sólbaðstofan Smart er vinsælasta og elsta sólbaðstofa landsins, stofnuð árið 1999 á Grensásvegi 7 og er sami eigandi frá upphafi.
Við bjóðum aðeins uppá það allra besta og erum umboðsaðili fyrir Hapro Luxura á Íslandi.
Árið 2025 endurnýjuðum við alla bekki í Smart Luxura Jewel EQ45 bekki sem eru tæknilegustu bekkir sem völ er á og með öllum þeim aukabúnaði sem völ er á.
12. nýjir Jewel bekkir og Hapro turbo standbekk.
Eitthvað sem engin önnur stofa býður uppá!
Okkar markmið er ávallt að bjóða uppá topp þjónustu, hreinlæti og nýjustu bekki á markaðnum.

